Gluggar og gler

Ágæti vinur gamla bæjarins í Múlakoti

Þetta er merkisdagur fyrir Múlakot

Það var að koma góð og mikil sending til gamla bæjarins í Múlakoti, allir gluggarammar og gler í miðhlutann og vesturendann í gamla Múlakotsbænum.

Gluggarnir voru smíðaðir í Hafnarfirði og eru mjög fallegir á að líta. Það verður aldeilis gaman þegar farið verður að koma þeim fyrir, en  það verður ekki fyrr en með vorinu. Svo verða þeir líka málaður fyrir ísetningu í vetur.

Þessi herlegheit kosta líka  sitt og hver króna sem Vinafélagið getur látið af hendi rakna til Sjálfseignarstofnunarinnar kemur að góðum notum.

Góð kveðja frá Múlakoti